16.4.05

Laugardagur

Ægileg rólegheit eru á manni þessa dagana, sónvarpsgláp og ef til vill bíó helgi eftir helgi. Ekki að það sé einu sinni neitt merkilegt í sjónvarpinu um helgar. Ég slysaðist til að horfa á byrjunina á Djúpu lauginni 2 í gærkvöldi en hætti þegar þáttastjórnandinn (18 ára stráklingur sem var í Idol) spurði stúlkurnar þrjár sem sátu þarna ljóshærðar: „Jæja, haldiði að hann geti framfleytt ykkur, svona af röddinni að dæma?“ Úff, skipti yfir á þáttinn hans Hemma Gunn þar sem voru gaulandi karlar og kerlingar en endaði á að horfa á allt sem ég hafði tekið upp í vikunni þegar ég var ekki heima. Guði sé lof fyrir vídeóið!

Annars erum við kannski búin að finna okkur bíl, ég vona bara að kaupin gangi upp. Þetta er gripurinn sem er í sigtinu en það kemur betur í ljós eftir helgina hvort þetta gengur allt eftir...

Svo er það harkan sex enn eina ferðina. Af hverju þarf maður alltaf að trassa allt fram á síðustu stundu? Ég ætlaði að vera búin að gera svo miklu, miklu meira en ég er búin með. Stórhættuleg þessi tölva með sínu bloggi, Skype og iTunes...

Engin ummæli: