28.8.06

Síðasti mánudagur sumarsins

Já, þetta er síðasti mánudagur sumarsins. Byrjar ekki haustið annars 1. september? Þannig er nú það, síðasta sumarvikan nýbyrjuð og mér finnst sumarið vera í mesta lagi hálfnað. Þetta litla sumar sem annars kom. Svona er þetta á hverju ári...

Annars hafa síðustu helgar að mestu farið í þrítugsafmæli. Menningarnæturdaginn var eitt og núna á laugardaginn annað. Ljómandi gaman alltaf í þessum veislum! Svo er ég eftir 12 daga...

Ég fór annars ekkert á menningarnótt nema á Árbæjarsafnið um daginn að skoða diskó/pönk sýninguna. Hún var virkilega skemmtileg en þó minni en ég hélt. Toppurinn var þegar við dönsuðum á gamla Hollywood gólfinu við diskólög undir handleiðslu reynds diskóbolta. Síðan var jú afmæli á milli fimm og sjö (næstum því til átta samt) og svo fórum við ægilega kát heim og vorum í svaka stuði klukkan átta. Svo sofnaði ég yfir sjónvarpinu kl. ellefu...

Annað hef ég lítið gert spennandi að undanförnu. Horft mikið á sjónvarpið. Er inni í öllum þáttum á Skjá einum nema The Contender sem ég hreinlega þoli ekki. Er mjög spennt yfir Fingersmith en ég tók upp seinni hlutann í gær til að horfa á í kvöld (einmitt á meðan The Contender er...). Er komin inn í alla geimveruþætti/sæskrímslaþætti (Invasion, The Surface), glæpaþættirnir halda mér límdri við skjáinn og var mér mjög skemmt þegar CSI:New York reyndist vera framhald af síðasta CSI:Miami þætti. Skemmtilegt tvist það! Svo er það auðvitað Alias sem er flóknari en nokkru sinni fyrr og svo raunveruleikaþættirnir en mér til mikillar gleði er America´s Next Top Model að byrja enn og aftur. Og Rockstar Supernova. Hver fylgist ekki með því? Samt les ég stundum líka, glæpasögur að sjálfsögðu. Það er orðið mjög langt síðan ég las eitthvað verulega menningarlegt. Að vísu las ég Furðulegt háttarlag hunds um nótt sem var æðisleg en hún er eiginlega líka barnabók. Ég ætti kannski að fara að lesa þessar Laxness bækur í bókahillunni sem ég á eftir að lesa. En þannig er nú það. Léttmetið er ágætt.

15.8.06

Ég er dansdrottning...

Date Engine
9th Sep 1976 :

List of Albums
1976 On your birthdate the No. 1 single was Abba - "Dancing Queen"
1977 On your 1st birthday Elvis Presley - "Way Down"
1978 On your 2nd birthday The Commodores - "Three Times A Lady"
1979 On your 3rd birthday Cliff Richard - "We Don't Talk Anymore"
1980 On your 4th birthday Kelly Marie - "Feels Like I'm In Love"
1981 On your 5th birthday Soft Cell - "Tainted Love"
1982 On your 6th birthday Survivor - "Eye Of The Tiger"
1983 On your 7th birthday UB40 - "Red Red Wine"
1984 On your 8th birthday Stevie Wonder - "I Just Called To Say I Love You"
1985 On your 9th birthday David Bowie & Mick Jagger - "Dancing In The Street"
1986 On your 10th birthday Communards - "Don't Leave Me This Way"
1987 On your 11th birthday Rick Astley - "Never Gonna Give You Up"
1988 On your 12th birthday Phil Collins - "A Groovy Kind Of Love"
1989 On your 13th birthday Black Box - "Ride On Time"
1990 On your 14th birthday The Steve Miller Band - "The Joker"
1991 On your 15th birthday Bryan Adams - "(Everything I Do) I Do It For You"
1992 On your 16th birthday Snap - "Rhythm Is A Dancer"
1993 On your 17th birthday Culture Beat - "Mr Vain"
1994 On your 18th birthday Wet Wet Wet - "Love Is All Around"
1995 On your 19th birthday Michael Jackson - "You Are Not Alone"
1996 On your 20th birthday Peter Andre - "Flava"
1997 On your 21st birthday The Verve - "The Drugs Don't Work"
1998 On your 22nd birthday All Saints - "Bootie Call"
1999 On your 23rd birthday Lou Bega - "Mambo No5 (A Little Bit Of...)"
2000 On your 24th birthday A1 - "Take On Me"
2001 On your 25th birthday Bob The Builder - "Mambo No 5"
2002 On your 26th birthday Atomic Kitten - "The Tide Is High (Get The Feeling)"
2003 On your 27th birthday Black Eyes Peas - "Where Is The Love?"
2004 On your 28th birthday Nelly - "My Place / Flap Your Wings"
2005 On your 29th birthday Gorillaz - "Dare"

Hvað skyldi svo vera nr. 1 eftir 25 daga???

14.8.06

Enn einn mánudagurinn

Þeir eru einhvern veginn alltaf þessir mánudagar! Sem þýðir að það er líka alltaf helgi sem þýðir aftur að sumarið er allt í einu að verða búið... Ótrúlegt. Það hefur eitt og annað drifið á daga mína síðan þarna fyrir verslunarmannahelgi. Sú helgi varð til dæmis ekki alveg jafnróleg og hún átti að vera. Við vorum t.d. tvær nætur í Kjósinni og lentum í brekkusöng á Kaffi Kjós sem var mjög gaman. Svo fórum við út að borða á sunnudagskvöldinu og ég lenti á svaka stuðskralli með vinum mínum alveg óvart. Skrýtið hvað maður getur lent í hinu og þessu. Sökum ekki svo rólegrar helgi varð vikan á eftir auðvitað handónýt en nýliðin helgi bætti það upp með nægum svefni og góðum tónleikum. Já, Morrissey spilaði fyrir mig og fleiri á laugardagskvöldið. Reyndar svolítið undarlegt að vera á sitjandi tónleikum þar sem er svo ákveðið að það megi standa og tjútta upp við sviðið. Ekki eins gaman þegar maður situr framarlega og sér allt í einu ekkert. Stemmningin verður líka öðruvísi. Mér fannst t.d. á tímabili (þegar ég var búin að tjútta svolítið uppi við sviðið) eins og hann væri að spila fyrir hálffullu félagsheimili, fremstu raðirnar tómar og allir sátu einhvern veginn og klöppuðu með. Maðurinn er samt sem áður snillingur og tónleikarnir frábærir eftir því. Eins gott að maðurinn með lambalærið var stoppaður í dyrunum! Það hefði alveg getað eyðilagt stemmninguna. Ég verð þó aðeins að hneykslast á fréttaflutningi Fréttablaðsins sem sagði frá því að Morrissey hefði verið á vappi í Kringlunni með konu og barni. Ég hélt að hann væri nú meira hinsegin en það enda kom í ljós að maðurinn var alls ekkert kominn til landsins þegar þetta átti að hafa gerst. Enda þarf enginn að segja mér að maður sem semur svona texta sé gagnkynhneigður...

Nóg að gera framundan, leita að vinnu, eiga afmæli, hitta Nick Cave aftur og fara að veiða!

4.8.06

Jibbí!

Þetta kemur sér vel fyrir mig... Ég á sem sagt miða á báða tónleikana núna, ligga ligga lái!

Það er annars ekki stefnt á útilegu um helgina, ekki að ég sé vön því að fara langt þessa helgi. Kjós 2006 í kvöld en svo bara bærinn. Stefni á að taka til heima, lesa eins og eina bók eða fleiri, horfa á eins og eina bíómynd og hitta vini mína sem virðast ætla að vera í bænum. Lítið annað hægt að gera í rigningunni.

Góðar stundir!

2.8.06

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Hitabylgja

Ekki gerist það nú oft að maður þurfti að flýja hitann í hádeginu með því að fara inn! Mig langar í buslulaug og sólbað. Mmmm...

1.8.06

Þriðjudagur

Ekki urðu myndirnar úr útilegunni nú jafnmargar og þær áttu að verða enda var ekkert gsm samband að Laugum í Sælingsdal. Þetta var því alveg ekta útilega, enginn sími eða neitt. Við vorum mjög heppin með veður, þótt það hafi ekki verið sól af ráði þá var mjög milt og alls ekkert kalt á nóttunni. Smárok á laugardaginn en lægði með kvöldinu. Við keyrðum síðan hringinn Fellsströnd-Skarðsströnd á laugardeginum, þaðan sem myndirnar hér að neðan eru, og var mjög gaman að keyra þann hring og stoppa á leiðinni. Afskaplega hressandi ferð að öllu leyti.

Mánudagurinn var þó ansi myglulegur eins og við var að búast. En þriðjudagurinn strax skárri með sól og blíðu. Lítið planað næstu helgi, í mesta lagi verður kíkt í Kjósina.

Ekki meira að frétta í bili. Þarf að fara að fá mér betri myndavélasíma sjálf...

29.7.06

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

28.7.06

Föstudagur!

Ekki hefur mér orðið mikið úr verki í morgun enda mjög sybbin, með Belle og Sebastian á heilanum og á leiðinni í útilegu. Ég er búin að vera dillandi mér síðan tónleikunum lauk í gærkvöldi, þetta voru hreint frábærir tónleikar. Ég myndi ekki hika við að fara aftur að sjá þau ef ég gæti, vonandi koma þau aftur seinna.

Svo er það útilega í dag, stefnan tekin á Laugar í Sælingsdal og hér verða settar inn myndir þaðan.

En fyrst er það vinnugrill í hádeginu, fylgist með á www.vinnugledi.blogspot.com!

Myndablogg

Hùn var nù fìn ì gær
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

27.7.06

Tónleikar og útilega

Langaði bara að setja inn lag með Belle og Sebastian í tilefni tónleikanna í kvöld. Ef þið eruð að fara eða viljið bara hlusta á rosalega skemmtilegt lag þá skuluð þið tékka á þessu.

Útilega framundan um helgina, endalegur staður ekki ákveðinn enn. Ætla að vera dugleg að setja inn myndir frá ferðalaginu á síðuna ef ég fæ lánaðan flotta símann á heimilinu...

20.7.06

Sól og sumarylur

Þá er maður mættur á ný til vinnu eftir langt og strangt frí. Við fórum af stað í roki og rigningu á föstudag í Dalina þar sem við vorum í svaka fínu húsi að Ljárskógum með veiðileyfi í Ljárskógarvötnum. Lítið var um veiði enda veður hreint ógeðslegt og langt og erfitt að komast að vötnunum en þeim mun meira var drukkið, etið, farið í sánu og spilað yatzy... Eftir tveggja nótta dvöl þar héldum við áfram og alla leið á Reykjanes í Ísafjarðardjúpi. Þar gistum við eina nótt og fórum m.a. í stærsta heita pott landsins, 50 m sundlaug sem er hituð upp með sjálfrennandi heitu vatni, hreint yndislegt alveg. Að vísu fullheitt á köflum en ljúft engu að síður. Á mánudaginn fórum við svo í meiri veiði, að þessu sinni í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Þar vorum við í tvo daga við veiðar með familíunni. 13 laxar komu á land og þar af fékk Jói einn en ég engan. Hins vegar fékk ég bónorð og hring í staðinn svo að ég læt það nú vera... Svo kemur maður bara heim í sól og blíðu og hlakkar til helgarinnar sem er óvenju skammt undan í upphafi vinnuvikunnar!

13.7.06

Jess!

Jess, jess, jess, jess!

12.7.06

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Bla

Ég verð greinilega óskrifandi svona veik. Mjög skrýtin setning í færslunni hér á undan um brjóstahaldara...

Er annars enn veik en samt skárri. Ákvað að vera heima í dag þar sem ég var með hita í gærkvöldi. Verst að ég er búin með Rome, verð að finna mér annað sjónvarpsefni til að horfa á í dag. Mæli aftur með þessum þáttum, svaka fínir.

11.7.06

Búhúhú...

Ég er veik heima:( Með ógeðslegt kvef og hita. Algjör vibbi! Vona að þetta verði búið fyrir helgina þar sem stefnan er sett á ferðalag innalands. Planið er að vera í húsi í Dölunum fram á sunnudag, einhvers staðar annars staðar fram á mánudag og svo er veiði frá mánudegi til miðvikudags í Ísafjarðardjúpi. Ágætt kannski að klára veikindin núna, þá er það búið fyrir ferðalagið.

Hef stytt mér stundir við að horfa á Rome. Þurfti til dæmis að vera veik í dag líka til að klára seríuna... nei, segi svona. Þetta eru samt þrælfínir þættir, svaka plott og fullt af nöktu fólki. Tilbreyting að horfa á e-ð frá Ameríku þar sem fólk er ekki í brjóstahöldurum í rúminu.

Talandi um sjónvarp, lokaþátturinn af Lost í gær og lokaþátturinn af Desperate Housewives á fimmtudag! Hvað gerir maður þá? Bíður eftir meira Alias og Sopranos eða eitthvað, vonandi tekur allavega eitthvað spennandi við...

6.7.06

Allez la France!

Já, ég spáði þessu nú áður en keppnin byrjaði. Að vísu spáði ég Frökkum heimsmeistaratitlinum og sú spá getur enn vel ræst. Mig minnir meiraðsegja að ég hafi veðjað við e-ð fólk seint um nótt eftir brúðkaup um daginn en verst að enginn man eftir því. Ég er allavega viss um að enginn þykist muna eftir því þar sem hinir veðjuðu á Argentínu, England, Brasilíu, Þýskaland og einhver svona lúðalið sem eru flest farin heim. Ansans, ég hefði getað orðið nokkrum bjórkippum ríkari...