14.8.06

Enn einn mánudagurinn

Þeir eru einhvern veginn alltaf þessir mánudagar! Sem þýðir að það er líka alltaf helgi sem þýðir aftur að sumarið er allt í einu að verða búið... Ótrúlegt. Það hefur eitt og annað drifið á daga mína síðan þarna fyrir verslunarmannahelgi. Sú helgi varð til dæmis ekki alveg jafnróleg og hún átti að vera. Við vorum t.d. tvær nætur í Kjósinni og lentum í brekkusöng á Kaffi Kjós sem var mjög gaman. Svo fórum við út að borða á sunnudagskvöldinu og ég lenti á svaka stuðskralli með vinum mínum alveg óvart. Skrýtið hvað maður getur lent í hinu og þessu. Sökum ekki svo rólegrar helgi varð vikan á eftir auðvitað handónýt en nýliðin helgi bætti það upp með nægum svefni og góðum tónleikum. Já, Morrissey spilaði fyrir mig og fleiri á laugardagskvöldið. Reyndar svolítið undarlegt að vera á sitjandi tónleikum þar sem er svo ákveðið að það megi standa og tjútta upp við sviðið. Ekki eins gaman þegar maður situr framarlega og sér allt í einu ekkert. Stemmningin verður líka öðruvísi. Mér fannst t.d. á tímabili (þegar ég var búin að tjútta svolítið uppi við sviðið) eins og hann væri að spila fyrir hálffullu félagsheimili, fremstu raðirnar tómar og allir sátu einhvern veginn og klöppuðu með. Maðurinn er samt sem áður snillingur og tónleikarnir frábærir eftir því. Eins gott að maðurinn með lambalærið var stoppaður í dyrunum! Það hefði alveg getað eyðilagt stemmninguna. Ég verð þó aðeins að hneykslast á fréttaflutningi Fréttablaðsins sem sagði frá því að Morrissey hefði verið á vappi í Kringlunni með konu og barni. Ég hélt að hann væri nú meira hinsegin en það enda kom í ljós að maðurinn var alls ekkert kominn til landsins þegar þetta átti að hafa gerst. Enda þarf enginn að segja mér að maður sem semur svona texta sé gagnkynhneigður...

Nóg að gera framundan, leita að vinnu, eiga afmæli, hitta Nick Cave aftur og fara að veiða!

Engin ummæli: