20.7.06
Sól og sumarylur
Þá er maður mættur á ný til vinnu eftir langt og strangt frí. Við fórum af stað í roki og rigningu á föstudag í Dalina þar sem við vorum í svaka fínu húsi að Ljárskógum með veiðileyfi í Ljárskógarvötnum. Lítið var um veiði enda veður hreint ógeðslegt og langt og erfitt að komast að vötnunum en þeim mun meira var drukkið, etið, farið í sánu og spilað yatzy... Eftir tveggja nótta dvöl þar héldum við áfram og alla leið á Reykjanes í Ísafjarðardjúpi. Þar gistum við eina nótt og fórum m.a. í stærsta heita pott landsins, 50 m sundlaug sem er hituð upp með sjálfrennandi heitu vatni, hreint yndislegt alveg. Að vísu fullheitt á köflum en ljúft engu að síður. Á mánudaginn fórum við svo í meiri veiði, að þessu sinni í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Þar vorum við í tvo daga við veiðar með familíunni. 13 laxar komu á land og þar af fékk Jói einn en ég engan. Hins vegar fékk ég bónorð og hring í staðinn svo að ég læt það nú vera... Svo kemur maður bara heim í sól og blíðu og hlakkar til helgarinnar sem er óvenju skammt undan í upphafi vinnuvikunnar!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli