31.10.04

Digitalis

Svona verð ég...



Ég hef varla tíma til að blogga fyrir öllu þessu sjónvarpi sem er í gangi þessa dagana! Stafrænt sjónvarp er komið inn á heimilið með yfir 30 sjónvarpsstöðvum og allt frítt til áramóta :) Sjónvarpssjúklingurinn ég er frekar ánægð með þetta allt saman þannig að ég verð sennilega upptekin öll kvöld á næstunni... að horfa á Stöð 2, Bíórásina, Private Blue eða eitthvað þaðan af skemmtilegra!

Sleit mig þó frá sjónvarpinu og dreif mig í sveitasæluna í gær þar sem ég fékk dýrindis lambakjöt af grillinu og á eftir spiluðum við manna sem ég auðvitað skíttapaði. Ég er ekki alveg með spilatæknina á hreinu, spila eiginlega nóló í hverju spili.

28.10.04

Nesið rúlar!

Já, þjónusta þeirra fyrirtækja sem ég hef skipt við í gegnum árin er einna best á Seltjarnarnesi skv. óformlegri þjónustukönnun. Í haust nefndi ég frábæra þjónustu Bílaness þegar bíllinn fór í viðgerð og nú voru það öðlingarnir í Nesdekki sem stóðu sig með prýði. Í gær hringdi Nonni sjálfur í mig og sagði að dekkin væru komin og í morgun fór ég að fá þau undir bílinn. Reyndar varð þetta ansi dýrt spaug en þó fékk ég gott verð á nöglunum (þeir fylgja sko ekki með dekkjunum...) og fékk staðgreiðsluverð á visakortið! Mjög almennilegir þarna á Nesinu:)

Svo er það æsispennandi Alias í kvöld þar sem vonda konan sem lítur alveg eins út og besta vinkona Sidney af því að hún þóttist vera hún og það var ekki hægt að breyta henni aftur er lifandi þótt hún hafi verið skotin þrisvar í síðustu seríu og reyndar líka næstum því drepin í síðasta þætti en drap svo alla í sjúkrabílnum og stakk af! Skilduð þið þetta?! Get ekki beðið...

26.10.04

hahahaha!

Myndir af samkvæmislífinu um helgina eru sérstaklega fyndnar núna hjá Baggalúti... Eiki Rö... þessir menn eru ótrúlegir!

Kalt

Ódýrt dekk



Já, það er sko kalt úti!!! Brrr, vona bara að það komi ekki hálka og vesen strax. Ég gerði tilraun til að fá vetrardekkin undir bílinn í morgun en það gekk nú ekki nógu vel. Tvö dekkin eru ónýt, stórt gat á öðru síðan það sprakk í vor og svo lak meðfram nöglunum allan hringinn á hinu... hvað á það að þýða? Þá eru naglarnir víst alltof stórir fyrir þessi dekk eða eitthvað og tímaspursmál þangað til fer að leka meðfram á hinum. Eitt dekk (já, 1 dekk) kostar 12.000 krónur takk fyrir en ég þarf að bíða eftir þeim ódýru og fínu dekkjum fram í næstu viku. Svona er að vera bíleigandi, það er víst meira en bensínið sem þarf að borga fyrir.

Var ég annars búin að segja ykkur hvað var gaman á Airwaves? Laugardagskvöldið var hreint út sagt frábært, The Stills og The Shins voru bara bestir af því sem ég sá á hátíðinni. Þið trúið því ekki hvað ég var glöð þarna um kvöldið, ég tala nú ekki um þegar ég komst óvart að því að bjórinn kostar bara 290 kr. ef maður á stúdentaskírteini! Heppin ég að vera enn í skóla...

22.10.04

Föstudagur

Hafiði tekið eftir því að ég skrifa soldið mikið um tónlist? Hmm... sennilega! Æi, þetta endar alltaf þannig hjá mér, enda svosum lítið annað við að vera þessa dagana. Airwaves er einmitt í gangi um helgina og alveg nóg að gera. Það voru tónleikar bæði í gærkvöldi og fyrrakvöld sem voru mjög skemmtilegir og svo er fullt að gera í kvöld. Þeir tónleikar sem eru búnir voru aðallega á einum stað en í kvöld vandast málið því að ég sé fram á að þurfa að flakka á milli svona 5 staða til að sjá það sem er spennandi - enda ætla ég bara að vera á bíl! Á morgun verð ég hins vegar aðallega á Gauknum og ætli maður fái sér ekki bara öl í tilefni þess og skilji bílinn eftir...

Föstudagsstuðið hlýtur því að vera með The Shins þar sem þeir verða á Gauknum annað kvöld. Njótið vel og góða helgi!

19.10.04

Fín

Ahhh, var að koma úr klippingu sem veitti sko ekki af! Hárið orðið sítt, upplitað og slitið og gráu hárin farin að skína í gegn. Það gengur náttúrulega ekki að vera þannig fyrir Airwaves sjáiði til. Verst að myndavélasíminn er ekki heima...

Svo er bara Airwaves að byrja á morgun! Það verða þá tónleikar á hverju kvöldi fram á sunnudag og svo útskrift (ekki mín samt) á laugardaginn líka. Aldeilis fjör framundan:)

18.10.04

Ónei

Nú er það nýjasta að Stranglers eru að koma í desember. Sem er kannski fínt bara... nema hvað að það er allt annar söngvari í hljómsveitinni núna en þegar þeir komu t.d. síðast. Hugh Cornwell, söngvarinn sem ku hafa stofnað hljómsveitina á sínum tíma, hætti árið 1990 og tók þá við annar söngvari. Þeir voru að spila eitthvað í París á sínum tíma (´97) og að vísu missti ég af þeim þar en þeir sem fóru voru nú ekkert yfir sig hrifnir, söngvarinn var algjör lúði sem passaði ekki alveg inn í Stranglers. Ég sel þetta samt ekki dýrara en ég keypti það... mig langar allavega ekkert rosalega að fara.

16.10.04

Dugleg stelpa

Þá er maður búinn að rífa sig upp úr eymdinni og farinn að gera eitthvað af viti! Ég er búin að taka smátörn í verkefninu aftur og ætla að halda því áfram á meðan ég er í stuði. Algjör handavinna í gangi þessa dagana sem ég hefði átt að vera löngu búin með en svona er þetta bara!

Var annars grasekkja í tvo daga þar sem hjásvæfan var í skólaferðalagi en er svo heppin að eiga góða vinkonu sem eldar handa mér á meðan að svo stendur á. Án hennar hefði ég sennilegast þurft að borða pasta með krukkusósu eins og í gamla daga...

Er líka búin að vera að hlusta á alveg yndislega plötu sem ég hvet alla til að hlusta á. Sufjan Stevens er tónlistarmaður frá Bandaríkjunum sem gerir alveg frábæra tónlist, allavega er platan hans, Seven Swans, alveg yndisleg. Svo er hann líka svaka sætur eins og sjá má af myndinni hér að neðan...


Súffi sæti

15.10.04

Snilld

Það var verið að benda mér á alveg tæra snilld. William Shatner er greinilega margt til lista lagt og er nú nýbúinn að gefa út plötu. Þar tekur hann Pulp-slagarann Common People alveg frábærlega auk annarra laga. Ég hef bara heyrt tvö laganna og er alveg stórhrifin. Hlustið á og njótið yfir helgina!

11.10.04

Ládeyða

Þvílík ládeyða sem er yfir manni þessa dagana! Svona fer haustið með mann... Fór allavega í tölfræðiprófið á laugardag og vona að það hafi gengið ágætlega, það verður bara að koma í ljós samt. Þegar það er búið getur maður líka farið að einbeita sér að öðrum hlutum, ég þarf a.m.k. ekki lengur að ná neinu upp og er komin á rétt ról þar.

Annars er dagskráin fyrir Iceland Airwaves loksins komin og lítur ágætlega út bara. Maður er náttúrulega farinn að skipuleggja sig soldið til að geta séð það sem er mest spennandi en þá þarf maður að gera ráð fyrir því að tímasetningar standist ekki (sem gerist nú yfirleitt á tónleikum) og jafnvel að það sé bara fullt út úr dyrum og maður komist ekki inn, því að þó maður eigi armband hleypir það manni aðeins inn á meðan húsrúm leyfir. Út af þessu öllu þá verður laugardagskvöldið strembið því að helst þyrfti ég að vera á 3 stöðum í einu og það er barasta ekki hægt! Á Nasa er spennandi dagskrá allt kvöldið og í Hafnarhúsinu eru Keane að spila sem mig langar að sjá. En Gaukurinn verður sennilega fyrir valinu því að þar eru The Shins að spila og þeir eru sko skemmtilegir. Nóg að gera framundan!

6.10.04

Ríkið

Image Hosted by ImageShack.us

Ég sá í Morgunblaðinu í gær að verið væri að loka Ríkinu á Seyðisfirði og flytja verslunina inn í bensínstöð. Ekki þó við hliðina á rúðupissinu, heldur í sama húsnæði. Seyðfirðingar munu vera afar óánægðir með þetta enda hefur verslunin verið í sama húsi síðan ég veit ekki hvenær og allir bara kátir með það. Þetta er ekki eina dæmið um að Ríkið flytji inn í bensínstöð. Um helgina sá ég að það var búið að flytja Ríkið á Höfn úr bara fínu húsnæði í pínulitla holu inn af Esso sjoppu. Ég fór þangað á föstudeginum og um leið og það voru komnir 3 inn í búðina gat maður ekkert skoðað í hillurnar fyrir fólki! Þar er fólk víst ekkert of ánægt með þetta og vildi fá búðina inn í Miðbæ sem er eins konar verslunarkjarni á svæðinu með stórri matvöruverslun og fleiri búðum. Þá var málið víst það að Esso gerði samning við ÁTVR um að hafa vínbúðirnar inni í sjoppunum! Þetta finnst mér bara hallærislegt. Þetta er ekki fyrsta skrefið í þá átt að hægt sé að kaupa vín með matnum, því ekki kaupir maður sér kvöldmat í Esso. Er þá ekki þægilegra að hafa vínbúðina í verslunarkjörnum sem svo víða hafa verið að byggjast upp svo fólk geti klárað dæmið á einum stað? Er kannski verið að hvetja til drykkju undir stýri? Kaupir maður sér þá bensín og bjór?? Huggulegt...

4.10.04

Mánudagur

Jæja, nú er ég að hugsa um að stoppa í bænum í nokkra daga... Helgin á Hornafirði var frábær eins og alltaf, maturinn hjá systur minni klikkaði ekki frekar en fyrri daginn þannig að ekki er maður mjórri eftir þessa helgi. Svo var líka heitur pottur hjá þeim sem var algjört æði þannig að það var vel slakað á. Og reyndar farið á diskóball líka!

En nú er bara mánudagur, brjálað rok úti og alþingisumræður í sjónvarpinu. Mikið er ég fegin að ná Skjá 1 núna! Og svo próf á laugardaginn í tölfræði:( Skemmtileg vika framundan!

30.9.04

Harbour in Hornfjord

Enginn tími til að blogga, er að fara út úr bænum... aftur. Hef ekki verið heila helgi í bænum síðan í júlí! Það eru tveir heilir mánuðir! Í þetta skiptið er það Höfn í Hornafirði þar sem systir mín kær býr. Við systkinin sem búum hérna megin á landinu förum árlega austur til að heimsækja þau og er þá líka farið á skytterí. Ekki við stelpurnar reyndar, við nennum ekki að vakna svona snemma til að skjóta fugla. En við ætlum sem sagt að leggja af stað á eftir, verst að ég er að kenna til kl. 4 og ekki getur maður víst skrópað frá því...

Föstudagsstuð verður ekki sett inn vegna af ótta við lögregluna. Svo verð ég ekkert með tölvuaðstöðu á morgun hvort eð er þannig að þá yrði það aldrei föstudagsstuð heldur. Góða helgi samt!

28.9.04

Þriðjudagur

Ég er ekki að nenna að læra og hvað gerir maður þá? Nú, fer á netið auðvitað! Helgin var rosa skemmtileg þrátt fyrir rok og rigningu framan af. Það kom slatti af löxum á land, enda dugnaðarforkar við veiðar. Þar af komu maríulax og maríuurriðar og ég landaði meira að segja laxi með hjálp stóru systur. Svo veiddi ég sjóbirting sem verður í matinn á eftir...


Image Hosted by ImageShack.us

Kajagoogoo 1983


Ég datt annars inn í skemmtilegan raunveruleikaþátt á Vh1 í gærkvöldi. Þátturinn heitir Bands Reunited og gengur út á að þáttastjórnandinn heimsækir meðlimi hljómsveita sem eru hættar og fær þá til að koma aftur saman. Í gær var hljómsveitin Kajagoogoo viðfangsefnið en það er hljómsveitin sem Limahl byrjaði í. Þegar hljómsveitin var orðin vinsæl fannst meðlimunum hún einum of mikil unglingahljómsveit, að aðdáendurnir hugsuðu meira um sæta söngvarann en tónlistina og því ráku þeir Limahl. Hljómsveitin leystist svo upp en Limahl varð rosa frægur með Never Ending Story o.s.frv. Nú, 20 árum síðar, er Limahl enn rosa sár og hefur ekki talað við hina meðlimina síðan hann var rekinn. Þeir samþykktu þó allir að koma saman fyrir Vh1 og spila á tónleikum, Limahl þurfti að leita að textunum sínum á netinu þar sem hann var búinn að gleyma þeim og allt, en þetta endaði allt vel með rosa tónleikum þar sem allir sungu saman! Merkilegt hvað tónlist getur fært fólk saman... Ég hlakka til að sjá hvaða hljómsveitir verða í næstu þáttum!


24.9.04

Föstudagsstuð

Tékkið á hárinu!



Föstudagsstuð vikunnar er með A Flock of Seagulls, snilldarhljómsveit með snilldarhár! Ef þetta kemur ykkur ekki í helgarskapið, þá veit ég ekki hvað...

Föstudagur... aftur

Það er bara alltaf föstudagur - sem er gott, er það ekki?? Ég veit ekki hvert dagarnir fara annars, þetta er ótrúlegt alveg. Nóg að gera í vikunni, tónleikarnir á sunnudaginn voru mjög góðir og fannst mér spilamennskan hjá þeim alveg frábær. Þau hefðu hins vegar mátt spila miklu lengur, ég var allavega ekki búin að fá nóg eftir þennan klukkutíma sem þau spiluðu. Og lagavalið hefði mátt vera betra líka... Samt rosa gaman og upphitunin var líka frábær.

Svo er bara búið að vera fullt að gera eins og gengur. Ég er þessa dagana að byrja í sjúkraþjálfun aftur og nú í Gáska. Mér líst bara mjög vel á það allt og alveg kominn tími á að fara að sprikla aftur eftir gott frí. Svo er það bara tölfræðin og kennslan, ég er alveg að meika það sem kennari bara... djók! Og blessað verkefnið sem ég fer nú að hella mér í aftur. Þetta er svona allt að gera sig bara sem er gott og blessað.

Helgin fer í veiðiskap og almenna skemmtun. Í dag á að fara í Kjósina að veiða í klak... ég ætla rétt að vona að veðrið lagist aðeins, en það verður bara að koma í ljós. Hele familien verður á svæðinu og góður matur snæddur og gaman gaman!

Var annars að komast að því með hjálp góðs fólks að lagið í Umferðarstofuauglýsingunni (Somewhere Over the Rainbow) er EKKI flutt af Israel Kamakawiwo'ole þar heldur ku söngvarinn í Tenderfoot syngja þetta þar svo undurfallega. Þetta er búið að taka mikið á mig og mína nánustu og gott að vera búið að fá þetta á hreint. Nú eru Tenderfoot sem sagt komnir í uppáhald og hlakka ég mikið til að sjá þá á Airwaves eins og svo margt annað.

21.9.04

Hehe

Mér finnst þetta nú bara nokkuð sniðugt hjá Ástþóri. DV má stundum alveg slaka á í „fréttamennsku“ sinni...

19.9.04

Sunnudagur

Það er alveg merkilegt hvað manni verður lítið úr verki á sunnudögum. Ég ætlaði svoleiðis að reikna tölfræðidæmi í allan dag og vera þvílíkt inni í öllu sem kennarinn talar um í tímanum á morgun en... ónei. Er búin að gera meira af því að glápa á tölvuskjáinn, hlusta á Blonde Redhead og spila kapal. Druslaði mér þó í sund þegar ég stóð upp af stólnum og fann að ég var eins og spýtukerling eftir setuna. Afskaplega hressandi að synda nokkrar ferðir og hlýja sér svo í heita pottinum á eftir. Sunnudagslæri hjá tengdó á eftir og svo tónleikar! Vibbívei!

17.9.04

Helgarstuð

Stuðlag helgarinnar hlýtur að vera með Blonde Redhead í tilefni tónleikanna á sunnudaginn. Lagið er af plötunni Melody of Certain Damaged Lemons frá árinu 2000 og ætti að koma fólki í tjúttgírinn! Kannski að ég reyni að setja inn stuðlag helgarinnar á hverjum föstudegi, hvernig líst ykkur á það?


Image Hosted by ImageShack.us

Fyrir utan tónleikana verður nú aldeilis stuð um helgina því að á morgun eru réttir! Það verður smalað og rúið og mömmukjötsúpa handa smalafólki á eftir... mmm. Svo er það lærdómurinn á sunnudag og ekkert múður! Reyndar gekk bara ágætlega að kenna í gær, mér fannst ég nú ekkert kennaraleg svosum þar sem ég beið fyrir utan stofuna með nemendum sem m.a. voru eldri en ég, en held bara að ég hafi staðið mig ágætlega. Er að hugsa um að fara að kalla mig Prófessor Valdís...

16.9.04

Tónleikar

Nú virðist vera komið að seinni tónleikahrinu ársins hjá mér. Framundan eru snilldartónleikar með Blonde Redhead, The Fall og Airwaves. Fyrir utan hvað mig langar á Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki á allt farið...

Blonde Redhead


Fyrst á stokk stíga Blonde Redhead, snilldarhljómsveit sem hefur komið hingað áður á upprisuhátíð Hljómalindar um árið. Þá spiluðu þeir í Laugardalshöll, sem var nú alveg glatað - alltof stór staður fyrir svona hljómsveit, enda virkaði salurinn tómur með nokkur hundruð manns. Nú á að skella þeim í Austurbæ sem er líka alveg glatað. Þetta er ekki sitjandi-tónleika-hljómsveit! Af hverju er ekki hægt að hafa þetta t.d. á Nasa? Ég hefði haldið að það ætti betur við. Ég hlakka samt rosalega til enda hrifin af öllu sem þau hafa gert.

The Shins

Í október er það Airwaves hátíðin og er ég búin að fjárfesta í passa á alla tónleikana. Ég þekki nú ekki nærri því allt sem verður þar í boði en hef þó hlustað á Keane og The Shins sem ég er mjög hrifin af. Það er bara spurning um að fara að finna sér eitthvað meira á netinu! Ég hlakka líka til að sjá eitthvað af íslensku hljómsveitunum og sá að Slowblow voru að bætast í hópinn. Reyndar hita þeir upp fyrir Blonde Redhead þannig að aldrei þessu vant eru þeir út um allt í ár!


Mark E. Smith í gamla daga

Svo eru það The Fall. Þeir hafa víst komið hingað tvisvar áður en þá var ég svona 6-7 ára og komst ekki... Þeir hafa gefið út allavega eina plötu á ári frá 1979 og á ég ekki allar plöturnar! Ég hef þó hlustað á einar 5 plötur eða svo eru þeir í miklu uppáhaldi hjá mér. Þið sjáið af þessu að það er nóg framundan og ef ég gæti myndi ég fara að sjá Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki í boði núna nema ég sleppi því bara að gefa jólagjafir í ár...