13.6.07

Gæsadagur

Það var nú kominn tími á smávegis breytingar og skrif hérna. Mér finnst ég bara haft svo lítið að segja og lítinn tíma til að blogga en ætla að reyna að skrifa smávegis á næstunni.

Það er búið að vera nóg að snúast samt að undanförnu. Í dag eru aðeins tíu dagar í brúðkaup okkar skötuhjúa og fullt að gera við undirbúning. Þó að veislan verði bara lítil þá þarf samt að undirbúa hana! Síðustu helgi fékk ég svo að vera gæs í einn alveg meiriháttar dag. Ég var sótt kl. 11 um morguninn af Önnu Katrínu sem mætti með bjór í hendi handa mér. Hún fór með mig upp í Hallgrímskirkjuturn þar sem vinkvennahópurinn beið og var skálað þar í freyðivíni á meðan klukkurnar hringdu (allir með puttana í eyrunum á meðan...). Því næst var hádegismatur í heimahúsi (og bjór) og síðan farið í pool (og drukkinn bjór) þar sem ég sýndi snilldartakta með því að hitta svörtu kúluna alltaf ofan í. Finnst svindl að það megi samt ekki fyrr en hinar eru komnar ofan í... Svo röltum við á ljósmyndasýningu með myndum af allsberu fólki en það kom í staðinn fyrir stripparann. Þá var farið í Laugar þar sem ég fékk rosa gott nudd á meðan stelpurnar biðu í baðstofunni og eftir nuddið hitti ég þær þar og fór í heita pottinn og piparmyntugufuna. Endurnærðar fórum við aftur í heimahús þar sem birtist allt í einu ókunnugur karlmaður sem ég var næstum búin að spyrja hvort að væri stripparinn. Ekki var hann það þó heldur kominn til að halda vínsmökkun fyrir okkur. Eftir nokkur glös af hvítvíni (maður var sko ekkert að skyrpa því út úr sé neitt) fórum við á La Primavera í alveg meiriháttar mat og þaðan var haldið út á lífið fram á rauða nótt. Alveg meiriháttar dagur og ég mæli með því að vera gæs!

1 ummæli:

Ólöf Viktorsdóttir sagði...

Vá, hljómar alveg sem frábær dagur. Snökt, snökt, ég hefði viljað vera með! Sendi þér alveg rosagóðar gæsakveðjur í staðinn :)