31.3.07

Ég lifi!

Jebb, ég er á lífi eftir alltsaman. Bara lítið í tölvunni utan vinnutíma til þess að blogga. Ekki að það sé svo ýkja margt að blogga um. Að vísu er ég búin að fara í sumarbústaðaferð en við fórum nokkur saman í veiðihúsið við Eldvatn um síðustu helgi sem var alveg hreint stórfínt. Pottur og sána er allt sem þarf þótt það sé rok og rigning! Svo eru páskarnir framundan með árlegri stórveislu í sveitinni sem verður enn stærri í ár þar sem það verður brúðkaup á laugardeginum. Nei, ekki við en annar fjölskyldumeðlimur ætlar loks að festa ráð sitt. Við ætlum að gera það í sumar...

Helgin núna verður með rólegasta móti enda helgin á milli sumó og páska. Það er nú ekki hægt að vera á fullu alla daga skal ég segja ykkur.

En annars vildi ég bara setja nokkrar línur hingað inn. Ég tékka inn seinna þegar ég hef tíma. Vonandi get ég svo farið að setja myndir hingað beint úr símanum og svoleiðis en það hafa verið e-r leiðindi með það síðan ég fór yfir á nýja bloggerinn. Ég var að reyna þetta um daginn í gegnum flickr en það gekk ekki svo vel eins og sést á síðustu færslu. Ég held áfram að reyna...

Engin ummæli: