Ég er búin að eiga mjög ánægjulega tónleikaviku þessa vikuna. Á miðvikudagskvöldið sá ég CocoRosie á Nasa, mjög spes systur sem gera mjög spes en flotta tónlist. Í gær fór ég svo í Fríkirkjuna að sjá Slowblow, Smog og Joönnu Newsom. Tónleikarnir voru alveg æði og var Joanna sjálf hápunkturinn, pínulítil stelpa með risastóra hörpu sem syngur eins og ég veit ekki hvað! Alveg þess virði að missa af Eurovision fyrir þetta.
Í dag á svo að fara í Eurovisionsumarbústaðaferð og horfa á keppnina á morgun af miklum áhuga þótt Silvía greyið hafi dottið út. Það voru hreint ömurleg lög að fara áfram á meðan önnur sátu eftir. Þó að það komi kannski ekkert svakalega á óvart með Silvíu þá voru önnur lög víst mjög líkleg áfram sem sitja eftir. Þetta er bara svipað og með Selmu í fyrra, lögin virðast ekki skipta öllu máli heldur löndin. Það þarf orðið að hafa sér Eurovision fyrir A-Evrópu svo að hin löndin eigi séns! Finnland fór þó áfram og nú eiga allir að kjósa Lordi á morgun. Áfram Finnland!!!
19.5.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli