12.5.06

Föstudagur

Það er ekkert grín að þykjast vera að vinna heima hjá sér þessa dagana. Maður freistast miklu frekar til að fara bara út í sólina og slæpast! Svo horfir maður á alla kassana í kringum sig og vill raða öllu upp á sinn stað. En það dugar ekki að væla, einhvern veginn verður maður að vinna fyrir þessari blessuðu íbúð! Ég er svo búin að fá vinnu fram á haustið sem ég byrja í 1. júní en hún felst víst í því að rannsaka afturbeygingu og miðmynd í íslensku... Spennó! Það verður fínt þar sem það verður unnið uppi í Háskóla og þá kemst maður aðeins út á daginn. Að vísu labba ég ekki í vinnuna eins og í fyrrasumar!

Annars er bara stuð framundan, rólegheitahelgi og síðan tvennir tónleikar í næstu viku. Aðrir tónleikarnir að vísu þegar undankeppni Júróvisjón er en ég tek hana bara upp og horfi á hana eftir tónleikana. Svo er sumarbústaðaferð eftir viku og þá verður sko horft á júró, jafnvel þótt Silvía Nótt verði sjálfsagt ekki með þar...

Engin ummæli: