2.5.06

Flutt!

Það hefur aldeilis verið mikið að gera síðustu vikurnar. Við fengum íbúðina afhenta á sumardaginn fyrsta og strax daginn eftir var tekið til við að mála. Og það var málað og málað og málað og þrifið. Svo fluttum við á fimmtudaginn var og þá pakkað og flutt og flutt og þrifið meira. Meira hvað maður getur skitið út eina íbúð á smátíma! Þegar maður var orðinn algerlega dauður af því að pakka, þrífa og flytja var blásið til fermingar í sveitinni þar sem hún Þórdís litla frænka (sem er ekki svo mjög lítil lengur) fermdist á sunnudaginn. Þar þurfti heldur betur að taka til hendinni þar sem veislan var haldin í heimahúsi og tóku við enn meiri þrif! Að vísu fékk ég hlutverk tæknistjóra sem var mun þægilegra, enda voru lappirnar þarna við það að detta af mér. Fermingarveislan heppnaðist með endemum vel og voru kræsingar á boðstólum eins og kengúra, dádýr, heimaveiddur og heitreyktur lax, sniglar, lamb, naut, grillaður (og heimaveiddur) lax o.s.frv. o.s.frv... Næstum því eins og gott laugardagskvöld á Valdastöðum! Eftir þessa frábæru veislu þurfti svo að fara í bæinn að þrífa meira þar sem Eggertsgatan var ekki búin. Í dag er svo loksins búið að skila lyklunum þar svo að það er hægt að fara að einbeita sér að nýja heimilinu þar sem allt er á hvolfi í augnablikinu. Síminn og netið fóru fyrst af stað í dag þannig að það er allt að komast í samt lag. Nú fer maður að verða fastagestur í Ikea og Rúmfatalagernum, Byko og Húsasmiðjunni til að kaupa hitt og þetta sem mann bráðvantar (og allt hitt sem mann langar bara í!). Allir eru velkomnir í heimsókn til að skoða pleisið, látið okkur bara vita fyrst!

Engin ummæli: