10.2.06

Andlaus

Ég er bara gjörsamlega andlaus núna. Hef ekkert að segja. Mín helsta iðja er að horfa á bíómyndir og sjónvarpsþætti, er búin að horfa á alla fyrstu seríuna af Arrested Development og fullt af bíómyndum. Við fengum lánaða ótrúlega sniðuga græju í bústaðinn um síðustu helgi, spilara með hörðum diski sem maður tengir beint í sjónvarpið. Þá fyllir maður harða diskinn af myndum og þáttum og horfir svo á það í sjónvarpinu eins og maður sé að horfa á dvd. Ótrúlega sniðugt! Svo sniðugt að við gátum ekki skilað græjunni fyrr en við vorum búin að kaupa okkur svoleiðis líka...

Annars var bústaðarferðin um síðustu helgi alveg frábær. Bústaðurinn var rosa flottur og við lágum í pottinum, fórum í saunu, gláptum á sjónvarpið og spiluðum yatzy. Afskaplega notalegt.

Í dag á svo Heiða María frænka 8 ára afmæli! Ótrúlegt að það séu komin 8 ár síðan hún fæddist. Af því tilefni er afmælisveisla á morgun og svo önnur letihelgi...

Engin ummæli: