9.11.05

Stíflueyðir

Svei mér þá ef það losnaði ekki aðeins um ritstífluna þarna með sölvunum... Ég er farin að skrifa og skrifa og ætla að reyna að skila einhverju í lok vikunnar svo ég geti nú farið í sumarbústaðinn með góðri samvisku. Gamla góða pressan virkar nefnilega alltaf og þegar maður er búinn að segjast ætla að skila einhverju þá er eins gott að standa við það!

Svo er bara að sjá hvort ég næ að vera búin með reglurnar og prófanir á þeim í tæka tíð fyrir útskriftarkokkteilinn í febrúar...

Mikið hrikalega er samt orðið dimmt úti, sérstaklega á morgnana þegar maður er að staulast á lappir. Það er nú eitt af því góða við jólin að þá er daginn farinn að lengja aftur:) Þangað til er bara að gera gott úr skammdeginu og kveikja á kertum...


Image Hosted by ImageShack.us

Engin ummæli: