Í dag, á degi íslenskrar tungu, stendur á forsíðu Blaðsins: A STAR IS BORN. Viðtal við Silvíu Nótt (Sylvía á forsíðunni - en Silvía inni í blaðinu) er síðan inni í blaðinu og er reyndar mjög fyndið, alveg ógeðslega töff skilurðu. Mér finnst hins vegar ekkert ógeðslega töff að hafa ensku á forsíðunni, það er alveg hægt að segja að stjarna sé fædd eða e-ð í þá áttina... samt tel ég mig ekki vera neinn sérstakan málfarsfasista. Blaðið er einstaklega slæmt í þessum málum og eru nánast daglega málfars- og stafsetningarvillur í því. Þetta er jú sama blaðið og auglýsti lamakjötið á dögunum... Þar sem ég á að vera að skrifa lokaritgerð um allt annað en málfar fannst mér tilvalið að fletta Blaðinu og leita eftir villum. Hér koma nokkrar:
-Í yfirlýsingu frá ríkistsjórninni... (bls. 2)
-Þeir sem höfðu orðið dukknir a.m.k. einu sinni
síðasta mánuðinn fjölgaði einnig...(bls. 2)
-Aðspurður segist Páll Magnússon, útvarpsstjóri, að tvær af fjórum
tilgreindum ráðningum snúi að sér... (bls. 4)
-Jón segir að tæknilegar ástæður hafi legið á bak við því að
auglýst viðtal... (bls. 6)
-...að þarna hefðu aðeins verið um tæknilega mistök að ræða. (bls.
6)
-Fyrirtækið Dreifing ehf. braut samkeppnislög með auglýsingum
sínunum... (bls. 6)
-...og varfundinn staður á næst öftustu síðu blaðsins. (bls. 14)
-...eftir fjörtíu ára aðskilnað... (bls. 28)
-Margar milljónir af lukkudýrum verða framleidd í formi gjafa- og
mynjavöru (bls. 30)
-Reglur sambandsins segja að liðum er ekki leyfilegt... (bls. 30)
-Smáborgaranum finnast bækur rosalega mikilvægar... (bls. 38)
Til hamingju með daginn!
16.11.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli