22.11.05

Þriðjudagur

Mikið svakalega voru nú White Stripes tónleikarnir góðir! Jakobínarína hituðu upp og voru mjög skemmtilegir þótt hjóðið hafi verið afleitt. Svo tóku þau Meg og Jack White við og voru bara tvö á sviðinu með þvílíka tónleika... Að vísu varð ég lítið vör við þessar breytingar sem átti að gera á sviðinu, allavega sá ég ekki mikið meira en venjulega á tónleikum þarna sem þýðir að sviðið hefur varla verið hækkað mikið. Held ég reyni að kaupa í stúku næst, gamla konan.

Næstu tónleikar á dagskrá hjá mér eru síðan Antony and the Johnsons 10. desember, á afmælisdegi pabba. Þeir verða í Fríkirkjunni sem er eflaust betri staður fyrir þá en Nasa þar sem var sussað á fólk til að heyra í tónlistinni. Það ættu allir að vera sæmilega edrú og þöglir í kirkju!

Þangað til er bara að læra og læra - og hananú! Þetta mjakast allt hjá mér, ég er núna í því skemmtilega hlutverki að telja saman hversu oft reglurnar virka hjá mér og hvernig ég get þá bætt þær... mjög skemmtilegt eða þannig, enda er ég að sofna hérna fram á lyklaborðið.

Engin ummæli: