20.2.07

Jamm og já

Lífið gengur sinn vanagang hér á bæ. Kobbi, eins og við köllum Kol, er fjörugur og frískur og finnst voða gaman þegar við vöknum á morgnana eða komum heim úr vinnunni. Þá er hann eins og píla um alla íbúð, prílar upp á sófa og nagar sjónvarpssnúrurnar. Við vonum að hann róist bara með aldrinum blessaður! Svo vonum við líka að hann fari að skána e-ð í maganum, það kemur svo ægilega vond lykt úr kattakassanum þegar hann gerir nr. 2...

Annars er nóg að gera þessa dagana. Síðasta helgi var ljómandi skemmtileg og byrjaði á vinnustuði þar sem ég sýndi að ég er ekki mikið betri að spila Pool en að kasta pílu en ég hef nýlega komist að því að hæfileikar mínir liggja ekki á þessum sviðum. Hins vegar finnst mér hvort tveggja mjög skemmtilegt og mun því æfa mig í þessum íþróttum á fullu! Að loknu púli var grímuball hjá 25 ára snót og var feikna fjör þar. Daginn áður hafði ég einmitt farið í Leikbæ í leit að grímubúning og var þar eina fullorðna manneskjan í þeim erindagjörðum! Fann að lokum grænan glimmerhatt og „bling specs“ í stíl. Mér skilst að það komi myndir á síðu afmælisbarnsins við tækifæri. Laugardagurinn var ekki eins hressilegur eins og gefur að skilja en þó lufsaðist ég að horfa á Júróvisjón með krökkunum og var aldeilis hissa þegar að Eiki Hauks vann þetta bara og það víst með yfirburðum. Annars er allt í sambandi við þetta Júróvisjón hætt að koma mér á óvart og alveg eins víst að hann vinni þetta bara, það er ekkert hægt að spá fyrir um úrslit keppninnar. Verra fannst mér þó að lag eftir þennan ágæta höfund skyldi ekki vinna úti í Írlandi (lagið má heyra hér) en ég er nú kannski ekki alveg hlutlaus þar. Fallegt lag þó!

Engin ummæli: