Þessa dagana skrifa ég lítið annað en ritgerð og því er lítið um að vera á þessari síðu! Þegar maður situr við tölvuna allan daginn að vesenast í ritgerðinni fer öll skriforka þangað og maður er algerlega andlaus að öðru leyti. Nú er ég hins vegar að bíða eftir að fá ritgerðina aftur í hausinn frá leiðbeinanda og því mál að skrifa nokkur orð hér.
Þó að ritgerðin taki allan tíma þessa dagana er nóg að gera allar helgar. Fyrstu helgina í janúar var til dæmis stórskemmtilegt þrítugsafmæli hjá henni Önnu Katrínu. Það stóð alveg frá kl. 6 og fram á nótt, allavega svona fyrir vinina. Núna um helgina var svosum lítið um að vera en þó lúsuðumst við uppeftir á sumardekkjunum. Það er kannski ekki sniðugt í fljúgandi hálku en með því að keyra bara á 40 hófst þetta alltsaman. Næstu helgi verður svo nóg um að vera, bæði er annað þrítugsafmæli hjá Hrafni - sem á einmitt afmæli í dag - og þorrablót í sveitinni! Ekki er þó hægt að vera á báðum stöðum í einu þannig að það þarf bara að velja og hafna... Þetta er stórfínt að hafa nóg að gera, það styttir janúarmánuð heilmikið og áður en ég veit af verð ég bara búin að útskrifast. Jibbíjei!
16.1.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli