Það er komið nýtt ár! Til hamingju með það allir. Hjá mér byrjar það í ritgerðarsmíð. Ég er þessa dagana að leggja lokahöndina á þetta, mér skilst að ég hafi þennan mánuð til að klára ritgerðina endanlega... Vá hvað ég hlakka til að klára! Það verður sko haldið upp á það!
Í dag eru tvö stórafmæli. Anna Katrín og Selma Hrönn eru samtals fimmtugar í dag, önnur þrítug og hin tvítug. Til hamingju stelpur!
Ég var að skoða betur eina skemmtilegustu jólagjöfina mína þessi jólin (að öllum öðrum ólöstuðum) en það er dvd með öllum Wham! myndböndunum. Ég sat fyrir framan sjónvarpið í gærkvöldi skælbrosandi og dillaði mér með allt í botni. Þetta er snilldarhljómsveit sem ég myndi leggja ýmislegt á mig til að sjá á tónleikum. Duran snúran segi ég nú bara! Ég sé nú samt ekki að þeir komi saman aftur, ég held að George Michael þurfi lítið á því að halda. Maður má samt láta sig dreyma...
4.1.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli