10.12.05

Tvær vikur til jóla...

Já, það eru tvær vikur til jóla í dag - jibbííí! Að vísu er ég ekki alveg komin í jólaskapið þótt ég hlakki voðalega mikið til en ég ætla að reyna að bæta úr því í dag. Fyrst ætla ég að byrja að kaupa jólagjafir og jafnvel jólakort og jólapappír. Kannski finn ég mér jólakjól í leiðinni en þar sem maður finnur aldrei flíkina sem mann vantar þegar maður leitar að henni þá tel ég ekki miklar líkur á því. Klukkan fjögur ætla ég síðan að sjá Jólaævintýri Hugleiks en á heimasíðu þeirra segir að sýninging sé kjörin til þess að koma fólki í jólaskap. Þá er að sjá hvort að það standist hjá þeim... Í kvöld ætla ég svo í kirkju, nánar tiltekið Fríkirkjuna. Að vísu eru það ekki jólatónleikar sem ég ætla að sjá heldur hinn hjáróma Antony og the Johnsons. Ég hlakka mikið til að sjá hann spila þar og vonandi sér maður betur en á Nasa um daginn. Það er svo aldrei að vita nema hann taki eins og eitt jólalag!

Ég er búin að vera að skrifa eins og óð manneskja í ritgerðinni, allavega í gær. Ég hitti leiðbeinandann á fimmtudaginn og hann sagði mér bara að skrifa sem mest fram að jólum. Ég tók hann bara á orðinu og skrifaði fullt í gær. Ég vona að andinn verði líka yfir mér næstu vikurnar og að jólaandinn taki ekki yfir skrifandann. Þeir hljóta að geta lifað í sátt og samlyndi... er það ekki?

Engin ummæli: