2.12.05

Föstudagur

Þá er enn einn föstudagurinn runninn upp, meira hvað tíminn líður þessa dagana. Niðurtalning til jóla er byrjuð en ég á ekkert dagatal með súkkulaði... kannski eins gott, maður fær víst nóg af því um jólin!

Lítið markvert að gerast þessa dagana, ég er á fullu í reglusmíð fyrir lokaverkefnið og sit sveitt við alla daga. Ef ég næ að klára reglurnar í dag þá ætti ég að vera í ágætis málum. Þá er bara að finna einhverja leið til að prófa þær en það virðist ætla að verða allt annar og meiri hausverkur.

Hins vegar er víst búið að opna fyrir íðorðasafnið sem ég var að búa til í sumar. Hægt er að leita að spennandi orðum eins og „talgervill“ og „talþjónn“ eða bara hverju sem er... innan tungutækni! Svo er auðvitað hægt að leita á ensku og finna íslenska samsvörun. Ég er nú samt hálffeimin við að hafa þetta þarna þar sem hver sem er getur skoðað.

Helgin framundan verður róleg býst ég við, helst að maður geri hreint eða eitthvað. Næstu tvær helgar eru líka annasamar þannig að það er nauðsynlegt að slappa af inn á milli.

Engin ummæli: