17.2.08

Rock and roll!







What band from the 80s are you?




You rule. in 15 years, you won't be as known as you are now, but most of the people that will know you then will like you (or else I'll beat them with a stick). You're nice to listen to.
Take this quiz!








Quizilla |
Join

| Make A Quiz | More Quizzes | Grab Code

19.1.08

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Thad thydir lìtid ad kaupa rùm handa Kobba thegar honum finnst best ad sofa à kommòdunni!

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Thad thydir lìtid ad kaupa rùm handa Kob.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

18.1.08

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Brjòstsykursgerd ì vinnunni

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Brjòstsykursgerd ì vinnunni.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

12.1.08

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Vid Blàa lònid

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Vid Blàa lònid.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

19.11.07

Dylan

2.11.07

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Bùin ad kaupa sòfa!

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Bùin ad kaupa sòfa!.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

6.10.07

Púff!


Púff!
Originally uploaded by valdiso

Ég var að fletta í gegnum nýtt blað sem kom út á dögunum, tónlistarblaðið Monitor. Þar er að finna grein um hljómsveitina Púff sem væri nú kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að aðalmyndin af hljómsveitinni í blaðinu er tekin á tónleikum í MR 1992 og hver haldiði að sé þar fremst á meðal áhorfenda, skælbrosandi, önnur en... ÉG! (Stærri mynd hér)

Já, þarna var ég, 16 ára, í 3. bekk í MR á mínum fyrstu alvöru rokktónleikum. Púff voru að hita upp fyrir Ham ef ég man rétt og þar sem ég hafði ekki kynnst Önnu Katrínu ennþá dró ég Hjördísi greyið með mér (er hægra megin við mig á myndinni á bak við míkrafónstand). Eins og sést á myndinni skemmti ég mér konunglega, enda nýflutt úr sveitinni og alsæl yfir þessum skemmtilegheitum í höfuðborginni. Eins og flestir sem þekkja mig vita þá urðu tónleikarnir sem ég sótti miklu, miklu fleiri og þá sérstaklega eftir að ég kynntist tónleikavinkonu minni;-) Þetta var sem sagt upphafið af því öllu...

Ljúfar minningar við að rekast á þessa mynd!

5.10.07

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Danielson ì fìnum bùningum

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Danielson ì fìnum bùningum.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

30.9.07

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Skuggi er nyi hvolpurinn ì sveitinni

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Skuggi er nyi hvolpurinn ì sveitinni.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

26.9.07

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Sushi

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Sushi.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

25.9.07

Nýjar myndir

Ég er búin að setja inn fleiri myndir úr brúðkaupsferðinni hérna. Þær eru allar komnar í röð og reglu svo að það verður að skoða þetta allt aftur til að sjá það sem ég bætti við.

Annars er ég hálfþreytt þessa dagana enda ekki búin að vera mikið í afslöppun eins og ég helst vildi. Var í veiðiferð/afmæli um helgina í Miðfirðinum og er enn að ná upp svefni. Byrjaði svo í ræktinni í dag eftir langt hlé og er nær viss um að ég fari ansi snemma að sofa í kvöld!

Hef svosum ekki mörgu við þetta að bæta... er þreytt! En endilega skoðið fleiri myndir:)

16.9.07

Fríið búið

Þá er sumarfríið að verða búið hjá okkur og við byrjum aftur að vinna á morgun. Kannski ágætt að byrja aftur á rútínunni eftir frábært frí:)

Eins og sást á myndunum sem ég er búin að senda hérna inn þá stoppuðum við aðeins í Danmörku á leiðinni heim frá Taílandi. Við stoppuðum fyrst tvær nætur í Kaupmannahöfn og þurftum að byrja á því að kaupa okkur jakka og peysur þar sem við vorum bara með sólarfötin með okkur og frekar kalt í Danmörku. Við hittum þar Svölu, Jenna og Kristján Ara sem var rosa gaman. Við löbbuðum líka Strikið út á Nýhöfn, fengum okkur öl og smörrebröd á Hviids Vinstue og enduðum í Tívolíi. Þar fór eitt tækið illa með mig en við snerumst svo mikið í því að mér varð flökurt það sem eftir var kvölds og hafði hvorki lyst á bjór né mat! Þá er nú illa farið með mann... Frá Köben héldum við til Árósa þar sem við vorum í þrjár nætur hjá Ingva, bróður hans Jóa, og fjölskyldu. Við höfðum aldrei komið þangað áður og vorum mjög hrifin af borginni. Ekki skemmdi fyrir að það var menningarvika í gangi þegar við vorum og því margt fólk og mikið líf í bænum. Við flugum svo heim frá Billund og lentum seint á laugardagskvöldinu fyrir viku.

Við stoppuðum heima í þrjár nætur en fórum svo í veiðiferð norður í Hallá á Skagaströnd. Við byrjuðum að veiða seinnipart þriðjudags og gekk ágætlega, einn lax kom þá á land. Fyrripart miðvikudags var eitthvað hægt að veiða en veiðimennirnir voru þó orðnir heldur blautir og kaldir í lok vaktar enda farið að rigna og hvessa. Seinnipartinn á miðvikudeginum var svo ekkert hægt að veiða þar sem var svo hvasst og vont veður. Það var því ekkert annað að gera en að fara á Blönduós að horfa á landsleikinn. Eini staðurinn sem við fundum þar var vegasjoppan Skálinn! En þeir seldu bjór svo að það var allt í lagi. Þegar við vöknuðum svo á fimmtudagsmorgni hristist kofinn og skalf, óveður var skollið á. Þvílíkt ógeðsveður hafði maður bara ekki séð í lengri tíma! Ekki var því hægt að veiða þá svo við reyndum að stytta okkur stundir með því að spila yatzy og fleira en þó var svo kalt í kofanum að við vorum öll dúðuð, með sængur utan um okkur og húfur... Ekki batnaði ástandið þegar rigningin breyttist í slyddu/snjó og fjöllin farin að hvítna! Aðeins var hægt að fara út seinnipartinn að veiða en þá var áin svo mórauð að það þýddi lítið. Á föstudeginum kíktum við aðeins út í á en drifum okkur svo í Prestbakkaá þar sem okkur hafði verið boðið að veiða þann daginn og þar fékk Jói svo lax. Soldið merkilegt að í tveimur veiðitúrum á árinu var ekki hægt að veiða vegna veðurs. Veðrið var of gott í Krossá, sól og blíða og ekkert vatn, en of vont í Hallá með roki, rigningu og of miklu vatni! Erfitt að gera þessum veiðimönnum til geðs...

Í gærkvöldi skellti ég mér svo á Jethro Tull tónleika sem voru alveg frábærir. Ég er búin að bíða lengi eftir að sjá þá og varð ekki fyrir vonbrigðum. Í dag nýtur maður þess svo að vera bara heima að hangsa enda ekki búin að gera mikið af því síðustu vikurnar.

13.9.07

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Thetta er veidivedrid, stormur og slydda!

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Thetta er veidivedrid, stormur og slydda.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

11.9.07

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by valdiso

Thà er thad veidiferd. Madur er bara aldrei heima!

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3548217610, titill skilaboðanna er: Thà er thad veidiferd. Madur er bara ald.

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

6.9.07

Menningarvika í Árósum, sól og fullt af


Menningarvika í Árósum, sól og fullt af
Originally uploaded by valdiso

Menningarvika í Árósum, sól og fullt af fólki:-)

5.9.07

Í lest til Árósa


Í lest til Árósa
Originally uploaded by valdiso

Í lest til Árósa

4.9.07

Hviids vinstue. Verdum eina nótt í vidbó


Hviids vinstue. Verdum eina nótt í vidbó
Originally uploaded by valdiso

Hviids vinstue. Verdum eina nótt í vidbót í Köben, thad er svo gaman thar!

2.9.07

Sidasti dagurinn

Tha er sidasti dagurinn runninn upp hja okkur i Tailandi. Sidustu tveir dagar hafa verid ansi heitir, sol og varla lift fyrir hita. A fostudaginn slokudum vid a vid sundlaugina, eg fekk fotanudd og hafdi thad bara gott. Um kvoldid forum vid svo a Simon kabarett thar sem adeins karlmenn og "karlmenn" taka thatt. Thad var otrulegt ad sja suma theirra og otrulegt ad their hafi nokkurn timann verid karlkyns! Adrir voru adeins grofari thannig ad stundum var thetta eins og drag syning. Eg set inn myndir vid taekifaeri svo folk skilji hvad eg a vid, eg er a.m.k. ekki hissa ad morgum bregdi thegar their hafa nad ser i glaesilega tailenska piu en fai svo ovaentan "gladning" thegar upp a herbergi er komid! Theier eru nefnilega margir glaesilegri en konurnar herna:) Eftir kabarettinn kiktum vid sidan a Bangla Road a Patong Beach sem er alraemdur partystadur. Thad var otrulegt areiti thar fra solumonnum og sifellt verid ad bjoda manni a "ping pong show" og a skuggalega nektarstadi. Ad sjalfsogdu bannadi eg Joa allt svoleidis og vid settumst a sakleysislegan saenskan bar og horfdum a mannlifid. Vid tokum sidan tuk-tuk til baka sem var lifsreynsla ut af fyrir sig, thad var brunad nidur brekkurnar og sem fyrr engin oryggisbelti eda neitt slikt!

Gaerdagurinn var held eg heitasti dagurinn i ferdinni og tha attum vid audvitad eftir ad klara ad versla! Thad var tha dagurinn til thess... Vid gengum thvi a milli buda og endudum a thvi ad kaupa adra ferdatosku til ad koma ollu draslinu fyrir i. Endudum sidan daginn daudthreytt a thvi ad borda finan mat, Joi fekk ser risahumar og eg fekk mer ond. Svaka gott!

I dag aetlum vid sidan ad klara ad pakka. Vid fengum ad tekka ut kl. 3 i stad hadegis en billinn sem keyrir okkur a flugvollinn kemur halfsjo. Velin fer sidan kl. halftiu til Bangkok og thadan forum vid i langa flugid til Koben thar sem vid lendum i fyrramalid, um halfatta ad stadartima. Thad verdur fint ad koma til Danmerkur, thetta er alveg buid ad vera frabaert herna en eftir hitann i gaer vorum vid bara fegin ad fara i adeins kaldara loft!

31.8.07

Rolegheit

Eftir ys og thys fyrstu vikuna hefur seinni vikan verid heldur rolegri. Thad rigndi herna a thridjudag og midvikudag. A midvikudaginn rigndi alveg stanslaust og thad engin smarigning. Vid notudum thvi taekifaerid og hvildum okkur vel og eyddum mestollum deginum a hotelinu. Thar sem vedrid var svona vont a midvikudag forum vid heldur ekki til Patong. Vid erum ad spa i ad fara thangad a laugardagskvoldinu, enda er thad sidasti sens.

I gaer attum vid lika rolegheitadag en vedrid var tho miklu betra, skyjad og engin rigning. Vid endudum svo daginn a ad fara i minigolf sem er herna vid hlidina en thad er rosa flottur gardur, Dino Park, thar sem madur spilar minigolf innan um risaedlur, eldfjall og fossa! Ja, og svo vann eg lika... enda buin ad vera a golfnamskeidi i sumar:)

I dag er svo glampandi sol og blida og vid kikjum sennilega e-d a strondina a eftir. Svo aetlum vid ad klara ad versla thad sem er eftir og i kvold aetlum vid svo ad fara a Simon Cabaret sem er syning med "ladyboys" a Patong. Thad verdur frodlegt ad sja!

28.8.07

Eg er buin ad skrifa sma vid myndirnar svo ad thad se betra ad skoda thaer. Svo er best ad smella a "Tailand 2007" til haegri a sidunni og smella thar a myndirnar, tha eru thaer i rettri rod...