Þá er sumarfríið að verða búið hjá okkur og við byrjum aftur að vinna á morgun. Kannski ágætt að byrja aftur á rútínunni eftir frábært frí:)
Eins og sást á myndunum sem ég er búin að senda hérna inn þá stoppuðum við aðeins í Danmörku á leiðinni heim frá Taílandi. Við stoppuðum fyrst tvær nætur í Kaupmannahöfn og þurftum að byrja á því að kaupa okkur jakka og peysur þar sem við vorum bara með sólarfötin með okkur og frekar kalt í Danmörku. Við hittum þar Svölu, Jenna og Kristján Ara sem var rosa gaman. Við löbbuðum líka Strikið út á Nýhöfn, fengum okkur öl og smörrebröd á Hviids Vinstue og enduðum í Tívolíi. Þar fór eitt tækið illa með mig en við snerumst svo mikið í því að mér varð flökurt það sem eftir var kvölds og hafði hvorki lyst á bjór né mat! Þá er nú illa farið með mann... Frá Köben héldum við til Árósa þar sem við vorum í þrjár nætur hjá Ingva, bróður hans Jóa, og fjölskyldu. Við höfðum aldrei komið þangað áður og vorum mjög hrifin af borginni. Ekki skemmdi fyrir að það var menningarvika í gangi þegar við vorum og því margt fólk og mikið líf í bænum. Við flugum svo heim frá Billund og lentum seint á laugardagskvöldinu fyrir viku.
Við stoppuðum heima í þrjár nætur en fórum svo í veiðiferð norður í Hallá á Skagaströnd. Við byrjuðum að veiða seinnipart þriðjudags og gekk ágætlega, einn lax kom þá á land. Fyrripart miðvikudags var eitthvað hægt að veiða en veiðimennirnir voru þó orðnir heldur blautir og kaldir í lok vaktar enda farið að rigna og hvessa. Seinnipartinn á miðvikudeginum var svo ekkert hægt að veiða þar sem var svo hvasst og vont veður. Það var því ekkert annað að gera en að fara á Blönduós að horfa á landsleikinn. Eini staðurinn sem við fundum þar var vegasjoppan Skálinn! En þeir seldu bjór svo að það var allt í lagi. Þegar við vöknuðum svo á fimmtudagsmorgni hristist kofinn og skalf, óveður var skollið á. Þvílíkt ógeðsveður hafði maður bara ekki séð í lengri tíma! Ekki var því hægt að veiða þá svo við reyndum að stytta okkur stundir með því að spila yatzy og fleira en þó var svo kalt í kofanum að við vorum öll dúðuð, með sængur utan um okkur og húfur... Ekki batnaði ástandið þegar rigningin breyttist í slyddu/snjó og fjöllin farin að hvítna! Aðeins var hægt að fara út seinnipartinn að veiða en þá var áin svo mórauð að það þýddi lítið. Á föstudeginum kíktum við aðeins út í á en drifum okkur svo í Prestbakkaá þar sem okkur hafði verið boðið að veiða þann daginn og þar fékk Jói svo lax. Soldið merkilegt að í tveimur veiðitúrum á árinu var ekki hægt að veiða vegna veðurs. Veðrið var of gott í Krossá, sól og blíða og ekkert vatn, en of vont í Hallá með roki, rigningu og of miklu vatni! Erfitt að gera þessum veiðimönnum til geðs...
Í gærkvöldi skellti ég mér svo á Jethro Tull tónleika sem voru alveg frábærir. Ég er búin að bíða lengi eftir að sjá þá og varð ekki fyrir vonbrigðum. Í dag nýtur maður þess svo að vera bara heima að hangsa enda ekki búin að gera mikið af því síðustu vikurnar.
16.9.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli