
Púff!
Originally uploaded by valdiso
Ég var að fletta í gegnum nýtt blað sem kom út á dögunum, tónlistarblaðið Monitor. Þar er að finna grein um hljómsveitina Púff sem væri nú kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að aðalmyndin af hljómsveitinni í blaðinu er tekin á tónleikum í MR 1992 og hver haldiði að sé þar fremst á meðal áhorfenda, skælbrosandi, önnur en... ÉG! (Stærri mynd hér)
Já, þarna var ég, 16 ára, í 3. bekk í MR á mínum fyrstu alvöru rokktónleikum. Púff voru að hita upp fyrir Ham ef ég man rétt og þar sem ég hafði ekki kynnst Önnu Katrínu ennþá dró ég Hjördísi greyið með mér (er hægra megin við mig á myndinni á bak við míkrafónstand). Eins og sést á myndinni skemmti ég mér konunglega, enda nýflutt úr sveitinni og alsæl yfir þessum skemmtilegheitum í höfuðborginni. Eins og flestir sem þekkja mig vita þá urðu tónleikarnir sem ég sótti miklu, miklu fleiri og þá sérstaklega eftir að ég kynntist tónleikavinkonu minni;-) Þetta var sem sagt upphafið af því öllu...
Ljúfar minningar við að rekast á þessa mynd!
2 ummæli:
En ótrúlega ótrúlega fyndið :)
En er hljómsveitin Púff enn við lýði, 15 árum síðar? Veit það einhver?
Nei, það er hún ekki. En það er hægt að lesa allt um Púff á síðunni monitor.is:)
Skrifa ummæli